Bjargið myndunum
9. október 2026
Guðmundur Guðmundsson, Sæbóli Ingjaldssandi, Árni Brynjólfsson, Vöðlum, situr undir árum og Gísli Þorseinsson, Þorfinnsstöðum Valþjófsdal. Hefur þessari mynd verið bjargað? Það er allavega búið að taka lélega símamynd af henni, bera kennsl á fólkið og gera hana aðgengilega lesendum síðunnar.
Fyrir tilviljun sá ég að félag/fyrirtæki ljósmyndasafnsfræðinga stendur fyrir árlegum mánuði tileinkuðum ljósmyndabjörgun. Þetta er góð áminning þó að ég hafi ekki kynnt mér dagskrána sem þetta félag stendur fyrir. Ég er áhugamaður um varðveislu ljósmynda og er með myndasafn fjölskyldunnar í þokkalegu horfi þó að það gæti verið betra. Fyrir stafrænar ljósmyndir er tvennt sem þarf að gera:
- Vera með afrit af myndunum. Öryggisafritun eru mikil fræði en lágmarksafritun skv. þeim eru þrjú eintök (að frumritum meðtöldum) á tveimur stöðum (ekki öll í sama húsi). Ég er með þetta á hörðum diskum og tek afrit nokkrum sinnum á ári. Það er því ekki fullkomin afritun af nýlegum myndum en á móti kemur að þær liggja oft nokkuð lengi á minniskortum og í símum. Ef öryggisafritun er góð er hægt að fresta næsta skrefi en það getur kostað meira áttak eftir því sem það frestast lengur.
Koma skikki á myndirnar svo að hægt sé að nálgast þær og skoða. Það er ekkert mjög skemmtilegt að fletta í gegnum myndir þegar það eru tuttugu myndir teknar yfir nokkrar sekúndur af barni að renna sér á skíðum inn á milli mynda af minnislista, fatamiða og sundurteknum blöndungi.
Hér er hægt að fara ótal leiðir. Ég bý til möppur fyrir tilefni og árstíðir, t.d. 2026_raudasandur fyrir myndir úr útilegunni og 2026_sumar fyrir myndir sumarsins sem ekki voru teknar af miklu tilefni. Ég afrita svo eigulegar myndir í möppurnar en skil frumritin eftir óhreyfð. Þannig fæst auka öryggisafrit en þessar eigulegu myndir eru geymdar á tölvu og öðrum hörðum diski en frumritin.
Fyrir myndir teknar á filmu er þetta aðeins annað mál. Þær eru yfirleitt aðgengilegri. Oft í albúmum, færri og vandaðri myndir að meðaltali og engar myndir sem hefðu getað verið tossalisti. Fyrir öryggisafritun og einnig til að deila með öðrum þarf að skanna þessar myndir. Því hef ég ekki sinnt fyrir þær myndir sem eru í minni vörslu fyrir utan stöku mynd sem ég hef smellt mynd af eins og þessari hér að ofan.