Þokulúður
Hápunkti samfélagsmiðlaferils míns náði ég með grein á facebook um hljóðmerkjagjöf skipa í þoku. Tilefnið var skemmtiferðaskip sem lá eða lá ekki við akkeri í Skutulsfirði, sjá t.d. hér. Margir skrifuðu undir færsluna meðan annars Muggi hafnarstjóri sem staðfesti að skipið hefði ekki legið við akkeri og því öll merkjagjöf rétt. En það er líklega til marks um veðursældina á Ísafirði að ég man ekki eftir slíkri uppákomu síðar. Greinin fylgir hér á eftir:
Óvíst er hvort þessi þoka hafi innihaldið skemmtiferðaskip.
Eins og frægt er orðið vöknuðu Ísfirðingar við þokulúður skemmtiferðarskips í gærmorgun. Skipið lá við akkeri við Prestabugt. Gefið var merkið tvö löng á tveggja mínútna fresti frá sex til hádegis. Margir voru óánægðir með flautið sem þeir vöknuðu við. Mér fannst merkjagjöfin notaleg, þó svo að blásturinn hafi ekki farið fram hjá mér í svefnrofunum. En ég velti því fyrir mér hvort að rétt merki hafi verið gefið.
Samkvæmt siglingareglum, 35. reglu nánar tiltekið, á merkið sem gefið var við „vélskip sem er laust en hefur stöðvast“. Í b-lið segir: „Vélskip sem er laust en hefur stöðvast og er ferðlaust skal með 2ja mínútna millibili í mesta lagi gefa tvö löng hljóð, hvert á eftir öðru, með um það bil 2ja sekúndna þögn á milli þeirra.“ Þar sem skipið lá við akkeri hefði þó átt að fara eftir g-lið en þar segir:
„Skip sem liggur við akkeri skal með einnar mínútu millibili í mesta lagi hringja skipsklukkunni ótt og títt í um það bil 5 sekúndur. Skip 100 m að lengd eða lengra skal hringja klukkunni frammá skipinu og strax á eftir klukknahringingunni skal berja málmtrumbuna afturá skipinu ótt og títt í um það bil 5 sekúndur. Skip sem liggur við akkeri má auk þess gefa þrjú hljóð hvert á eftir öðru, þ.e. eitt stutt, eitt langt og eitt stutt hljóð til þess að vara skip sem nálgast við stað skipsins og hver hætta kunni að vera.“
Það hefði verið meira trukk í þessu. Bjalla fram á, „gong“ aftur á og eitt stutt, eitt langt og eitt stutt með þokulúðrinum (lúðurinn reyndar valkvæður). En málið er ekki alveg svo einfalt því hugsanlega hefði d-liður skákað fyrrnefndum liðum, en þar segir:
„Skip að fiskveiðum sem liggur við akkeri og skip með takmarkaða stjórnhæfni sem liggur við akkeri þegar það er að störfum, skulu í stað hljóðmerkjanna sem mælt er fyrir um í g-lið þessarar reglu gefa hljóðmerkið sem mælt er fyrir um í c-lið þessarar reglu.“
Hljóðmerkið samkvæmt c-lið er „eitt langt hljóð og á eftir því tvö stutt hljóð“. Það má færa fyrir því rök að skipið hafi haft takmarkaða stjórnhæfni auk þess að liggja við akkeri. Í fyrsta lagi takmarkaðist stjórnhæfnin af stærð þess og þrengsla þar sem það lá og einnig þar sem verið var að flytja fólk til og frá skipinu.
Skipstjórinn hefur hugsanlega viljað hlífa bæjarbúum með því að blása bara tvisvar en ekki þrisvar. Þeir sem létu þetta fara í taugarnar á sér ættu því kannski að þakka skipstjóranum fyrir að flauta ekki meira í stað þess að bölva honum.