Mandarínuvörpun
7. september 2026Sameinuðu þjóðirnar hafa samþykkt ályktun um að hætta notkun á Mercator kortavörpun fyrir heimskort, sjá t.d. hér. Er markmiðið að stærðir landa verði hlutfallslega réttar á heimskorti. Þetta eru góðar fréttir og eðlilegt að Grænland sé ekki á stærð við Afríku á korti.
Mynd 1. Heimskort með Mercator vörpun. Kunnulegt útlit einstakra landa. Oftast eru Mercator kort ekki látin ná jafn langt til suður og norðurs. Hér er kortið látið ná á 85° á báðum hvelum og sést vel hversu ýkta stærð Suðurskautslandið hefur. Kortagögn frá Natural Earth.
Verkefnið að koma hnetti á flatt kort er ómögulegt. Það verður eingöngu gert með því að rífa og teygja yfirborðið. Mercator vörpunin sem er algeng vörpun fyrir heimskort sýnir lítil svæði á jörðinni nokkuð óbjöguð en á móti kemur að lönd verða stærri eftir því sem fjær er farið frá miðbaug og stór svæði því bjöguð.
Sameinuðu þjóðirnar mæla nú með equal earth vörpun (mynd 2). Þá eru stærðir landsvæða réttar en á móti kemur að þau bjagast. Við miðbaug teygjast þau í N–S stefnu en í V–A stefnu nær pólunum. Útlínur Svalbarða er t.d. illgreinanlegar.
Mynd 2. Heimskort með equal earth vörpun. Kortagögn frá Natural Earth.
Ísland kemur ekkert sérstaklega vel út úr equal earth vörpuninni. Mercator vörpunin er nokkuð óbjöguð fyrir lítil landsvæði og Ísland því verið vel sett á algengum heimskortum hingað til. Með equal earth vörpuninni er landinu þjappað og þónokkuð bjagað, sjá mynd 3.
Mynd 3. Íslandskort með equal earth vörpun. Kortagögn: „IS 50V Strandlina“, Náttúrufræðistofnun afnotaleyfi CC BY 4.0.
Uppáhalds kortavörpunin mín hefur lengi verið Euler spírall. Hún hefur þann kost að ekkert þarf að teygja yfirborðið. Bjögunin verður því lítil sem engin hvort sem litið er til lítilla eða stórra svæða. Gallinn er hins vegar sá að yfirborð jarðar verður töluvert rifið en flestir staðir á jörðinni sitja við sama borð varðandi það. Þessi kortavörpun ætti því að gera alla jafn sátta. Annar stór kostur er að ferlið við að fletja jörðina er frekar auðskiljanlegt og má auðveldlega prófa þegar t.d. mandarína er afhýdd, sjá mynd 4. Ferillinn sem fæst úr slíkri vörpun kallast klótóíða. Vegir fylgja oft slíkum ferlum, krappi klótóíða breytist línulega eftir vegalengd ferilsins og henta því vel til að tengja saman beina kafla og beygjur eða beygjur með mismunandi krappa.
Mynd 4. Euler spírall úr mandarínuberki. Lítið sem ekkert þarf að teygja börkin svo að hann liggi flatur. Ókostur í kortavörpun er að erfitt getur verið að átta sig á afstöðu á milli staða.